- Live From The Road
- Fréttir
- 2006
- Ísland 5. september: Reykjavík
- Ísland 6. september: Kópavogur
- Ísland 4. september: Reykjavík
- Ísland 2. september: Brú í Hrútafirði - Stykkishólmur
- Ísland 1. september: Reykjavík
- Ísland 30. júlí: Katanes - Reykjavík
- Ísland 29. júlí: Borgarnes - Katanes
- Ísland 28. júlí: Holtavörðuheiði - Borgarnes
- Ísland 27. júlí: Blönduós - Holtavörðuheiði
- Ísland 26. júlí: Sauðárkrókur - Blönduós
- Ísland 25. júlí: Lágheiði - Sauðárkrókur
- Ísland 24. júlí: Til móts við Akureyrarhöfn - Lágheiði
- Ísland 23. júlí: Reykjahlíð - Til móts við Akureyrarhöfn
- Ísland 22. júlí: Möðrudalur - Reykjahlíð
- Ísland 21. júlí: Fagridalur - Möðrudalur
- Ísland 20. júlí: Stöðvarfjörður - Fagridalur
- Ísland 19. júlí: Djúpivogur - Stöðvarfjörður
- Ísland 18. júlí: Höfn - Djúpivogur
- Ísland 17. júlí: Fagurhólsmýri - Höfn
- Ísland 16. júlí: Kúðafljót - Fagurhólsmýri
- Ísland 15. júlí: Hvolsvöllur - Kúðafljót
- Ísland 14. júlí: Hellisheiði - Hvolsvöllur
- Ísland 13. júlí: Reykjavík - Hellisheiði
- Ísland 31. ágúst: Reykjavík
- 2005
- 2006
- Hlaupaleið
- Fjölmiðlar
- Vinir
- Skólahlaup
- Söngur World-Harmony Friðarhlaupsins
- Um
Ísland 17. júlí: Fagurhólsmýri - Höfn
Í gærkvöldi barst Vináttuhlaupinu kærkominn liðsauki en þá bættust fjórar konur í Vináttuhlaupsliðið og hófu þær þátttöku sína í hlaupinu strax klukkan 9 þegar lagt var upp frá Hnappastöðum og hlaupið var austur að Jökulsárlóni.
Veðrið var mjög gott allan daginn og tilkomumikið að hlaupa yfir sandana og í gegnum sveitinar með þessa gæsilegu fjallasýn og jökulinn aldrei langt undan.
Þegar komið var að lóninu tóku hlaupararnir hvíld til að njóta náttúrufegurðarinnar og hvíla lúin bein. Farið var í siglingu á lóninu í boði Hjörleifs og var það mjög skemmtileg upplifun, sérstaklega fyrir erlendu hlauparana.
Eftir góða hvíld reyndist erfitt að koma hlaupinu aftur að stað og var það ekki vegna óviljugra hlaupara eða slæms veðurs heldur fór einn af bílunum ekki í gang. Aftur kom Hjörleifur til sögunar og hjálpaði okkur með startköplum og því óhætt að segja að hann sé maður hlaupsins þennan mánudag. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
Eftir hádegið var svo hlaupið áfram inn í Suðursveit sem leið liggur framhjá hinu glæsilega Þórbergssetri og Hrollaugarstöðum en þar höfðu hlaupararnir gist kvöldið áður.
Ráðgert var að ljúka hlaupinu við Hornarfjarðarfljót en þar mætti okkur óvæntur liðstyrkur fótboltastelpna úr Sindra og hlupu þær alla leið að Grunnskóla Hornafjarðar.
Hinn fríða flokk frá Sindra skipuðu þessar:
Guðlaug Margrét Björnsdóttir, Þórdís Imsland, Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Roslín Alma Valdemarsdóttir, Karitas Björt Óskarsdóttir, Brynja Rut Borgarsdóttir, Bríet Bragadóttir, Kristjana Hafdal Þorvarðardóttir, Árdís Drífa Birgisdóttir, Lára Björg Friðriksdóttir, Brynja Baldursdóttir, Þórgunnur Torfadóttir og Iðunn Tara Ásgrímsdóttir.
Distance: 114km
Harmonemail:
You can send a message to the runners or read the messages.
< Iceland 16 July < Czech Republic 16 July < Ísland 16. júlí |
Iceland 18 July > Czech Republic 18 July > Ísland 18. júlí > |
Iceland 17 July Czech Republic 17 July |