- Live From The Road
- Fréttir
- 2006
- 2005
- 23. júlí: Reykjavík - Explorer
- 15. júlí: Laugarbakki - Borgarnes
- 16. júlí: Borgarnes - Reykjavík
- 12. júlí: Akureyri - Lágheiði
- 13. júlí: Lágheiði - Varmahlíð
- 14. júlí: Varmahlíð - Laugarbakki
- 11. júlí: Chahida kveður
- 11. júlí: Reykjarhlíð - Akureyri
- 10. júlí: Möðrudalur - Reykjarhlíð
- 8. júlí: Fáskrúðsfjörður - Egilsstaðir
- 9. júlí: Egilsstaðir - Möðrudalur
- 8. júlí: Gestsaugað
- 7. júlí: Djúpivogur - Fáskrúðsfjörður
- 6. júlí: Höfn - Djúpivogur
- 5. júlí: Fagurhólsmýri - Höfn
- 2. júlí: Reykjavík - Markarfljót
- 3. júlí: Markarfljót - Kirkjubæjarklaustur
- 4. júlí: Kirkjubæjarklaustur - Fagurhólsmýri
- Upphafsathöfn
- Hlaupaleið
- Fjölmiðlar
- Vinir
- Skólahlaup
- Söngur World-Harmony Friðarhlaupsins
- Um
11. júlí: Reykjarhlíð - Akureyri
Lagt var upp frá Reykjarhlíð í dag og var veður milt og hlýtt þrátt fyrir rigningu. Sem sagt, ágætis veður til hlaups.
Hvort sem það var veðrinu að þakka eða öðru, þá var mikill hugur í krökkunum í Ungmennafélaginu Eflingu sem hlupu með okkur frá enda Mývatns. Fyrstur Eflingarmanna hljóp Vilhjálmur Kristjánsson, sem átti 17 ára afmæli þennan sama dag. Hvort sem það var út af afmælinu eða öðru, þá stökk Vilhjálmur á harðasprett sem linnti ekki fyrr en 6 km síðar. Var það mál manna að hraða Vilhjálms hefði sæmt sér vel í hvaða frjálsíþrótta- eða götuhlaupi sem er.
Yngri sveitungar Vilhjálms tóku við kyndlinum í kjölfar þessa magnaða spretts og var, sem fyrr segir, mikill hugur í mönnum. Samkvæmt upprunalegri áætlun áttu Eflingarmenn að hlaupa með okkur að Laugum, en í raun linntu þeir ekki hlaupunum fyrr en komið var alla leið að Goðafossi. Var það einkar mikið afrek hjá yngstu kynslóðinni að hlaupa yfir brattan hálsinn.
Við kvöddum skemmtilega og kappsmikla Eflingarmenn, en þurftum ekki að hlaupa langt til að hitta fleiri norðlenska fullhuga, því á miðju Víkurskarði mætti okkur Rannveig Oddsdóttir með hóp þrautþjálfaðra hlaupara sem hlupu með okkur alla leið til Akureyrar, en það voru, auk Rannveigar, Guðrún Kristjánsdóttir, Randver Karlsson og Steingrímur Hannesson.
Á Leirunum slógust krakkar úr UMSE í för og úr varð mikil og skemmtileg stemning síðasta spölinn í dag, þegar komið var inn að torginu á Akureyri.
Harmonemail:
You can send a message to the runners or read the messages.
< Iceland 10 July < Ukraine 10 July < 10. júlí |
Iceland 12 July > Ukraine 12 July > |
Iceland 11 July Iceland 11 July 11. júlí Ukraine 11 July |