- Live From The Road
- Fréttir
- 2006
- 2005
- 23. júlí: Reykjavík - Explorer
- 15. júlí: Laugarbakki - Borgarnes
- 16. júlí: Borgarnes - Reykjavík
- 12. júlí: Akureyri - Lágheiði
- 13. júlí: Lágheiði - Varmahlíð
- 14. júlí: Varmahlíð - Laugarbakki
- 11. júlí: Chahida kveður
- 11. júlí: Reykjarhlíð - Akureyri
- 10. júlí: Möðrudalur - Reykjarhlíð
- 8. júlí: Fáskrúðsfjörður - Egilsstaðir
- 9. júlí: Egilsstaðir - Möðrudalur
- 8. júlí: Gestsaugað
- 7. júlí: Djúpivogur - Fáskrúðsfjörður
- 6. júlí: Höfn - Djúpivogur
- 5. júlí: Fagurhólsmýri - Höfn
- 2. júlí: Reykjavík - Markarfljót
- 3. júlí: Markarfljót - Kirkjubæjarklaustur
- 4. júlí: Kirkjubæjarklaustur - Fagurhólsmýri
- Upphafsathöfn
- Hlaupaleið
- Fjölmiðlar
- Vinir
- Skólahlaup
- Söngur World-Harmony Friðarhlaupsins
- Um
5. júlí: Fagurhólsmýri - Höfn
Hlaupið hófst í dag við Fagurhólsmýri en það voru þau Sólrún Sigurjónsdóttir, Karl Heimir Einarsson og Þorsteinn Jóhannesson sem báru kyndilinn alla leið að Jökulsárlóni.
Hlaupararnir fór svo út á lónið í bátsferð með Arnóri Fjölnissyni. Siglingin á lónið var mikið upplifun fyrir erlendu hlauparana í liðinu og á örugglega eftir að vera eitt af þeim augnablikum sem stendur uppúr hjá þeim eftir þessa miklu hlaupaferð til Íslands.
Það var
Anna María Steinke,
leiðsögumaður á Jökulsárlóni, sem fylgdi hlaupinu aftur af stað og þurfti að berjast í gegnum mikinn kríuskara sem ekki virtist sýna þessu vináttuhlaupi mikinn skilning. En Anna María leysti það mjög vel úr hendi og hljóp alla leið að Fellsá.
World Harmony hlaupararnir tóku þá við kyndlinum og hlupu nokkra stund. Þegar komið var að bóndabænum Hala í Suðursveit vildu krakkarnir frá bænum fyrir alla mundi fylgja hlaupinu úr hlaði. Það voru þau frændsystkinin Magdalena Sigurðardóttir, Sæbjörn Þór Þórbergsson, Þórbergur Friðriksson, Þóranna Lilja Þórbergsdóttir og Lára Björg Friðriksdóttir sem lögðu upp. Markið var sett á Hrolllaugstaði og hlupu krakkarnir af miklu kappi og skiptust á með kyndilinn. Fljótlega fór þó þreytan að segja til sín, líkt og eðlilegt er.
En hin 6 ára Magdalena var ekki á þeim buxunum að gefa neitt eftir og vildi fyrir alla muni hlaupa áfram. Með henni hljóp tékkneski leikskólakennarinn, Neelabha og náðu þær mjög vel saman. Þær hermdu ef eftir öllum þeim dýrum sem á vegi þeirra urðu og fóru frá því að fljúga um himininn niður í að bíta gras og hlógu mikið og dátt. Þetta hjálpaði til við að halda áfram að hlaupa og þegar Magdalena var spurð hvort hún væri ekki orðin þreytt þá kannaðist hún ekki við það, hún sagði leiðina til að verða ekki þreytt að anda hratt og djúpt, þá verður þetta ekkert mál. Þannig hlupu þær saman hönd í hönd drykklanga stund. Áður en varði voru bleiku vaðstígvélin hennar Magdalenu búin að bera hana alla leið að Hrollaugsstoðum. Þar skildu leiðir en á hlaupunum höfðu þær vinkonur náð mjög vel saman þrátt fyrir að hafa alist upp í mörg þúsund kílómetra fjarlægð og með áratuga millibili. Þannig finnur maður vináttu og tengsl á óvæntum stöðum!
Að lokum var hlaupið inn að Höfn í Hornafirði og voru það skólabörn þaðan og úr Ungmennafélaginu Mána sem hlupu með okkur inn í bæinn. Nöfn þeirra eru: Hannes Halldórsson, Guðmundur Einar Sævarsson, Felix Þór Gíslason, Eggert Helgi Þórhallsson, Hallur Hallsson, Björn Ármann Jónsson, Gísli SK Jónsson, Gísli Þórarinn Hallson, Haukur Smári Gíslason, Júlían Bent Austar Egilsson, Fannar B Austar Egilsson, Iðunn Tara Ásgrímsdóttir, Hulda Laxdal Hauksdóttir, Sigurborg Eiríksdóttir, Oddleifur Eiríksson, Egill Eiríksson
Fjallað er um komu Vináttuhlaupsins til Hafnar á vefnum hornafjordur.is
Skoða má fréttina hér , en þar eru einnig góðar myndir.
4. júlí
6. júlí
Harmonemail:
You can send a message to the runners or read the messages.
< 4. júlí < 3. júlí < 2. júlí < Iceland 4 July < Romania 4 July |
Iceland 6 July > 6. júlí > Moldova 6 July > |
Iceland 5 July |