Eva Einarsdóttir
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi, er góður vinur Friðarhlaupsins. Eva hefur þess utan beitt sér fyrir framgöngu friðarmála og því var það okkur mikið ánægjuefni að veita henni hvatningarverðlaun Friðarhlaupsins, "Kyndilberi friðar" við 25 ára afmælishátíð Friðarhlaupsins 27. apríl 2012 við Höfða.