Inngangur
Að skilja vef lífsins þýðir að átta sig á því hvernig allir hlutir, lifandi eða dauðir, eru samtengdir. Allt í þessum heimi er á einhvern hátt tengt öllu öðru í þessum heimi. Stundum getum við ekki séð á hvaða hátt hlutirnir tengjast, en samt getum við áttað okkur á því að þeir eru tengdir. Sem dæmi má nefna að við sjáum ekki regndropana fyrr en löngu eftir að þeir hafa fallið úr skýjunum. Samt vitum við að droparnir koma úr skýjum, því ef það eru engin ský, þá er ekkert regn.
Tengsl lífvera eru afskaplega mikilvæg því við lifum öll á sömu jörð. Allar lífverur - jurtir, dýr og menn - deila sama loftinu, sama vatninu og sömu steinefnunum úr jörðinni. Í raun erum við háð hvort öðru á margan hátt. Sem dæmi má nefna að loftið sem menn og dýr anda frá sér - koltvísýringur - er einmitt það sem plöntur þurfa að anda að sér. Og lofttegundin sem plöntur gefa frá sér - súrefni - er nákvæmlega það loft sem menn og dýr þurfa að anda að sér.
Á milli okkar mannanna eru sérstök tengsl, því við höfum það verkefni að sjá um velferð plánetunnar okkar. Þetta þýðir ekki að við séum herrar Jarðarinnar, heldur frekar að við höfum þá ábyrgð að hlúa að henni. Til þess að hægt sé að tryggja velferð Jarðarinnar þurfa mennirnir að læra að láta sér lynda vel hver við annan - að læra að vinna og njóta í samveru. Menn þurfa að læra að deila með öðrum. Menn þurfa að læra hvernig þeir geta lært hver af öðrum og hvernig þeir geta hjálpað hver öðrum.
Tilgangur kennsluefnisins Vefur lífsins: Að skilja hvernig sérhver mannanna tengsl geta stuðlað að bættum heimi er því að efla jákvæð tengsl manna á milli og draga fram hvernig sérhver einstaklingur getur haft jákvæð áhrif á allan heiminn.