Skipuleggjendur
World Harmony Friðarhlaupið er skipulagt af alþjóðlegu neti sjálfboðaliða, sem hafa sýn Sri Chinmoys um friðsælli heim sáttar og samlyndis að leiðarljósi. Skipuleggjendur í hverju landi fyrir sig eiga samstarf við skóla, félagasamtök, íþróttahreyfingar og yfirvöld um framkvæmd Friðarhlaupsins, hvort heldur sem um ræðir lítinn staðbundinn viðburð, eða móttöku alþjóðlegs hlaupaliðs.
Boðhlaupslið World Harmony Friðarhlaupsins samanstanda af einstaklingum á öllum aldri og af öllum stéttum og stigum, sem gefa tíma sinn og orku til að Friðarhlaupið geti heimsótt samfélög um víða veröld.
Yfirumsjónarmaður: Salil Wilson
email: global [ at ] worldharmonyrun [dot] org
Umsjónarmaður Evrópu: Dipavajan Renner
email: europe [ at ] worldharmonyrun [dot] org
Umsjónarmaður hlaupsins á Íslandi: Torfi Suren Leósson
email: iceland [ at ] worldharmonyrun [dot] org